Forsíða  
  Um Tölvun  
  Internetið  
  Vörur  
  Þjónusta  
 



avast! reseller



 
 

Notkunarskilmálar Tölvunar. Almennar reglur sem gilda um netsambönd Tölvunar.

1. Óheimilt er að trufla að nauðsynjalausu eða að skerða á nokkurn hátt afnot annarra notenda á tölvunetinu, t.d. með óeðlilegri dreifingu pósts, "ruslpósti", keðjubréfum eða tilraunum til að trufla samtöl á spjallrásum.

2. Óheimilt er að hýsa á heimasvæðum, dreifa á póstlistum, eða láta liggja á lausu, t.d. á vefsvæðum, efni sem brýtur gegn íslenskum lögum, s.s. hvers kyns efni er ætlað er að lítillækka fólk eða draga í dilka, hvað varðar trúarbrögð þess, kynferði, skoðanir eða litarhátt. Einnig er óheimilt að hýsa efni á heimasvæðum sem tengjast ruslpóstsstarfsemi hverskonar.

3. Afnot af netfangi eru bundin við einstaka persónu (notanda). Notanda er með öllu óheimilt að veita öðrum aðgang að netfangi sínu með því að láta af hendi lykilorð netfangsins. Þetta á þó ekki við um fjölskyldumeðlimi sem hafa heimild til að nota aðgang rétthafans.

4. Óheimilt er að nota aðgang þann er netfang veitir til að komast yfir upplýsingar um aðra notendur kerfisins, eða notendur annarra kerfa, aðrar en þær sem eru settar upp í opnum gagnagrunnum eins og veraldarvefnum (WWW).

5. Óheimilt er að trufla að nauðsynjalausu eða að skerða á nokkurn hátt afnot annarra notenda á tölvunetinu, t.d. með óeðlilegri dreifingu pósts, "ruslpósti", keðjubréfum eða tilraunum til að trufla samtöl á spjallrásum.

6. Gjald fyrir upphringitengingar er óháð notkun. Ef notkun netfangs er hætt um lengri tíma en mánuð getur notandi látið loka því og falla þá greiðslur vegna þess niður á meðan. Heimilt er að eyða netfangi ef það hefur verið lokað í 3 mánuði.

7. Notandi skal að öllu leyti virða þær umgengnisreglur sem settar eru notendum á Internetinu, þ.m.t. reglur sem gilda á öðrum hlutum þess og þær notkunarreglur sem heildarsamtök aðila að Internetinu setja.

8. Tölvun er á engan hátt ábyrg vegna tjóns eða annars skaða sem kann að leiða af því að notandi getur ekki notað netfang sitt.

9. Tölvun ber ekki ábyrgð á skaða sem notendur valda sér eða öðrum við notkun á netþjónustum Tölvunar.

10. Tölvun áskilur sér rétt til að loka lénum og netföngum sem brjóta í bága við notkunarskilmála Tölvunar.