Forsíða  
  Um Tölvun  
  Internetið  
  Vörur  
  Þjónusta  
 



avast! reseller



 
 

Nýherji

Nýherji er eitt öflugasta þjónustufyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni. Fyrirtækið býður heildarlausnir í upplýsingatækni, ráðgjöf, útvegun hugbúnaðar og vélbúnaðar, skrifstofutæki og tæknilega þjónustu. Markmið Nýherja er að útvega heildarlausnir í upplýsingatækni sem skapa mikinn ávinning fyrir viðskiptavini.

Hjá Nýherja starfa um 260 starfsmenn sem búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði upplýsingatækni.

Góður árangur Nýherja byggir á náinni samvinnu starfsmanna og góðu sambandi þeirra við viðskiptavini fyrirtækisins.

Nýherji er fulltrúi fjölmargra erlendra framleiðenda tæknibúnaðar og flestir þeirra eru í fremstu röð á sínu sviði, svo sem IBM, Canon, ASK, Heidelberg, SAP, Siebel, Avaya, Cisco, APC og Philips.

Fyrir okkur er þetta einfalt - Nýherji býður þér betri lausnir

Opin kerfi
Starfsemi Opinna kerfa ehf. skiptist í fjórar megin deildir, heildsölu-, sölu-, þjónustu- og fjármáladeild.
Heildsöludeild selur tölvubúnað til yfir 70 endursöluaðila um land allt. Áhersla er lögð á að selja og þjónusta vörur sem seldar eru í tölvuverslunum svo sem einkatölvur, prentara, skanna, rekstrarvörur og aðrar skyldar vörur.
Söludeild þjónar mörgum af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Áhersla er lögð á persónulega þjónustu þar sem krafist er þekkingar á möguleikum upplýsingatækninnar ásamt skilningi á sérþörfum viðskiptavina.
Allt frá stofnun fyrirtækisins hefur rík áhersla verið lögð á hágæða þjónustu og hefur hún verið mjög stór þáttur í rekstri fyrirtækisins. Þjónustudeildin sér um tæknilegan rekstur fjölda upplýsinga- og netkerfa að hluta eða öllu leyti. Í þjónustumiðstöð Opinna kerfa hefur sjálfvirkni stóraukist. Með notkun HP Open-View sér þjónustudeildin um eftirlit og rekstur tölvukerfa hjá fjölda viðskiptavina. Þjónustudeildin sérhæfir sig í að þjóna stærri viðskiptavinum sem gera miklar kröfur til vandaðra vinnubragða. Auk þess hefur deildin á að skipa sannkölluðu landsliði í þjónustu á Microsoft, Unix/Linux og Cisco búnaði. Meginþættir í þjónustu félagsins eru fjórir:

Þjónusta á Unix kerfum
Leitast er við að bjóða góða þjónustu enda er félagið stærsti söluaðili Unix kerfa hérlendis.

Þjónusta á hugbúnaði frá Microsoft
Félagið hefur gert viðamikinn samstarfssamning við Microsoft Corp. og er Opin kerfi "Microsoft Senior Partner". Opin kerfi eru þannig hluti víðtæks nets fyrirtækja sem bjóða lausnir byggðar á Microsoft vörum og tækni. Er það í samræmi við þá stefnu sem mörkuð hefur verið með samstarfi Hewlett-Packard og Microsoft á heimsvísu.

Sala á víðnetslausnum
Með tilkomu Cisco Systems umboðsins getur félagið boðið viðskiptavinum sínum heildarlausnir á sviði netmála.

Verkstæði
Verkstæðið sér fyrst og fremst um þjónustu við einkatölvur og hluti þeim tengdum, eins og netbúnað, bleksprautuprentara, geislaprentara og skanna.

EJS EJS - leiðandi fyrirtæki á sviði upplýsingatækni

EJS er eitt stærsta þekkingarfyrirtæki landsins og starfar það á öllum sviðum upplýsingatækni allt frá sölu og þjónustu á heimsþekktum vél- og hugbúnaði, til nýsmíða og þróunar hugbúnaðar og lausnum fyrir atvinnulífið hér á landi sem erlendis. Mikill vöxtur hefur verið undanfarið í rekstri fyrirtækisins og má geta þess að á síðasta ári var 29% aukning í búnaðarsölu frá árinu á undan.

EJS er almenningshlutafélag og eru hluthafar 598. EJS hefur ásamt systurfyrirtækinu Hug haslað sér völl sem einn stærsti útflytjandi landsins á hugbúnaðarþekkingu og hefur komið að stórum verkefnum í Ástralíu, Hong Kong, Singapúr, Kína og á Bretlandseyjum.
Fyrirtækið skiptist í tvö megin svið: sölusvið (viðskiptastjórn, vörustjórn og innkaup) og þjónustusvið (nethópur, hýsing, verkstæði og þjónustuborð). Fjármálastjórn er sameiginleg með EJS og Hug á sviði EJS Group. Auk þeirra starfa þrjú stoðsvið, eignir og rekstur, markaðsmál, og gæðastjórnun.

Hjá EJS starfa nú 80 manns og er um 33% þeirra með háskólagráður. Þannig eru 28% með BSc / BA gráður, 5% starfsmanna með MSc / MA háskólagráðu, og 5% aðrar háskólagráður. Um 35% starfsmanna eru með vottuð próf á sérhæfðri þekkingu á vörum og hugbúnaðarlausnum (Microsoft/Oracle/Sun/Cisco/CheckPoint o.s.frv.).

Það er metnaður EJS að hvetja starfsmenn til að afla sér menntunar og vottunar á öllum sviðum starfsseminnar. Með því er starfsmannaveltu haldið hæfilegri og þekking og gæði vinnunnar tryggð.
www.ejs.is

Kiktu ehf.
Óðinn_Burkni
Óðinn Burkni Helgason sér um tengingar inn á og þjónustu við Víðnet Suðurlands. Tölvun rekur þráðlausa internetsenda víða um Suðurland. M.a. á Selfossi, Grímsnesi, Laugarvatni, Böðmóðsstöðum, Laugalandi og á Akurhóli. Óðinn Burkni er okkar maður á Suðurlandi og er með mikla reynslu í uppsetningum á þráðlausum búnaði ásamt almennri tölvuþjónustu. 
 
 
 
 
 
 
 
 
Stjórnun

Stjórnun ehf . þjónustar fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum með það að markmiði að veita úrvals þjónustu á samkeppnishæfu verði.

Rekstrarráðgjöf - Stjórnun ehf. býður uppá stjórnunarráðgjöf, rekstrarráðgjöf, fjármálaráðgjöf og mannauðsstjórnun.

Bókhald - Stjórnun ehf. tekur að sér færslu bókhalds fyrir stærri sem smærri fyrirtæki.

Hýsing - Hýsing - Við getum tekið að okkur hýsingu launavinnsla, framkvæmdastjórnunar, starfsmannamála og skrifstofuhalds.

Rekstrargreining - Rekstrargreining felst í alhliða greiningu rekstrar með það að markmiði að bæta og styrkja reksturinn.

Breytingastjórnun Breytingastjórnun - Breytingarstjórnun miðast mikið út frá grundvallarþáttum mannauðsstjórnunar og kjarnafærni.

Umhverfisstjórnun - Með umhverfisstjórnun geta stjórnendur hagrætt ýmsum þáttum rekstursins á þann veg að bæði náttúran og fyrirtækið njóta góðs af um leið og ábyrg afstaða er tekin til umhverfisins.

www.stjornun.is

Gotta ehf

Gotta ehf er alhliða þjónustuaðili við rekstraraðila og einstaklinga í rekstri.  Sérstök áhersla er lögð á launavinnslu, bókhald og uppgjör vegna opinberra gjalda.  Boðið er og uppá hýsingu og aðra þjónustu í samstarfi við samstarfsaðila okkar, Tölvun ehf, verkfræði- og tölvuþjónustu.

Hugur hf

Hugur hf. er framsækið hugbúnaðarfyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum heildarlausnir á sviði upplýsingatækni.

Í gegnum árin hefur byggst upp sérþekking innan fyrirtækisins og aðferðafræði þróast við gangsetningu stórra og smárra hugbúnaðarverkefna. Mikil áhersla er lögð á öguð og vönduð vinnubrögð. Unnið er eftir gæðakerfi byggðu á ISO 9001 gæðastaðlinum.

Hjá Hug starfar hæft starfsfólk með víðtæka þekkingu og reynslu af viðskiptahugbúnaði og upplýsingatækni. Starfsmenn eru nú um 100 talsins. Aðalskrifstofa fyrirtækisins er í Hlíðasmára 12 Kópavogi.

Viðskiptavinir Hugar eru nú um 2000 talsins, þar á meðal mörg af stærstu og öflugustu fyrirtækjum landsins.

dk         

dk hugbúnaður hf.