|
Tölvun ehf. Verkfræði- og tölvuþjónusta Fyrirtækið Tölvun ehf - Verkfræði- og tölvuþjónusta, var stofnað þ. 25. mars 1993 af þeim hjónakornum Davíð Guðmundssyni rafmagnsverkfræðingi og Aðalheiði Jensdóttur.
Starfsemi Tölvunar má skipta niður í 4 meginsvið, en þau eru: tölvuþjónusta, internetþjónusta, vefsíðugerð og tölvuverslun (/ -verkstæði)
Davíð, Kristín og Auðbjörg voru áður starfsmenn tölvudeildar Samfrost, en það fyrirtæki sá um rekstur sameiginlegs tölvukerfis 4 stærstu frystihúsanna í Eyjum. Við sameiningu frystihúsanna vorið 1993 hætti Samfrost starfsemi og yfirtók Tölvun þá rekstur tölvudeildar Samfrosts. Þannig hefur reiknistofuþátturinn frá upphafi verið einn af grunnþáttum starfseminnar. Tölvusamskiptanet frystihúsanna hefur frá upphafi verið mjög öflugt. árið 1987 var lagður 1,5 km langur tölvukapall sem flutt getur 10 milljón bita á sekúndu og og er strengurinn enn í fullri notkun en hann liggur um allt athafnasvæði fiskvinnslufyrirtækjanna (sem voru 10 talsins ‘87). Undir stjórn Tölvunar hefur framþróun tölvufjarskipta í Eyjum verið mikil. Í samvinnu við Vestmannaeyjabæ var árið 1996 ráðist í lagningu ljósleiðara frá tölvusamkiptamiðstöð Tölvunar í "Hvítahúsinu", eins og Strandvegur 50 er gjarnan kallaður, til Bæjarveitna. Á sama stað eru tæknideild bæjarins og hafnarstjórn til húsa. Samtímis var 2 Mbps örbylgjusambandi komið á milli Tölvunar og Ráðhússins annarsvegar og Tölvunar og Áhaldahússins hinsvegar. Í Ráðhúsinu er yfirstjórn bæjarins staðsett ásamt félagsmálageiranum. Á tengingu Ráðhússins eru einnig Bóka- og Byggðasafnið. Með þessu tryggði bæjarfélagið sér öflugt samband milli stærstu stofnana sinna með beintengingu inn á móðurtölvu bæjarins, auk þess að ná beinu sambandi við internetþjónustu Tölvunar sem staðsett er í Hvíta húsinu. Árið 2000 var mjög viðburðarríkt hvað varðar tölvusamskiptin þar sem við héldum áfram að ljósleiðaravæða Eyjarnar ásamt því að koma upp 11Mbps örbylgjuneti. Árið 2001 verður enginn eftirbátur fyrri ára þar sem fjölmargir aðilar hafa bæst í hóp sítengdra internetsnotenda. Nú er svo komið að einn leikskóli, Rauðagerði, báðir grunnskólarnir, Barnaskólinn og Hamarsskólinn, Listaskólinn og Framhaldsskólinn eru allir tengdir á 11Mbit örbylgjusambandi við samskiptamiðstöð Tölvunar í Hvítahúsinu. Rannsóknasetrið í Hvítahúsinu, sem telur Háskólaútibúið, Rannsóknastofnun Fiskiðnaðarins, Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofu Suðurlands, er með beintengingu við Eyjanetið auk þess sem Tölvuskólinn er tengdur samskiptamiðstöðinni um ljósleiðara.
Þetta býður upp á einstaka möguleika á samskiptum milli þessara aðila auk þess sem skólamálafulltrúa og félagsmálageiranum í Ráðhúsinu gefst færi á samskiptum á svipaðan máta í gegnum 2 Mbit örbylgjunetið sem sett var upp árið 1996. Uppi eru hugmyndir um að nýta Eyjanetið við uppbyggingu skólanets þar sem allar þessar skólastofnanir frá leikskóla til háskóla, koma að máli. Tölvun hefur starfað í internetþjónustu frá árinu 1995 og er það snar þáttur í starfseminni enda býður internetið upp á mikla möguleika. Tölvun hefur um skeið rekið Real Audio/Video þjón sem varpað getur hljóði og mynd út á internetið í beinni útsendingu. Hefur Útvarp Suðurlands og Sportrás ÍBV til dæmis nýtt sér þessa þjónustu. Tölvun rekur hugbúnaðarverlsun á vef sínum í samvinnu við bandaríska fyrirtækið Digital River. Í boði eru hátt í 300.000 hugbúnaðartitlar og geta Íslendingar nú óhræddir verslað sér hugbúnað í íslenskum krónum. Internetnotendur Tölvunar eru aðallega úr Eyjum og af Suðurlandi jafnt fyrirtæki sem einstaklingar. Á vefþjónum okkar eru vistuð fjöldi léna sem rætur eiga að rekja til Suðurlands og Eyja.
2004 settum við upp vefsíðudeild. Helsta afurð deildarinnar er Vefstjórinn sem upprunninn er í Svíðþjóð og á Tölvun höfundar- og dreifingarrétt á Íslandi fyrir þetta geysiöfluga vefumsýslustól. Vefdeild Tölvunar er til húsa að Strandvegi 51.
Árið 1997 tókum við þátt í fjölþjóðlegu verkefni á vegum Jason Foundation, en það snerist um að bera saman heit svæði á Íslandi og Ameríku. Nemendur áttu að geta fylgst með vísindamönnum að störfum "live" og senda þeim fyrirspurnir í beinni. Hvað okkur varðaði þá sáum við um að senda sjónvarpsmerki frá Eldfellinu nýja, þráðlaust til internetmiðstöðvarinnar í Hvítahúsinu og þaðan um internetið til Yellowstone í USA sem aftur sendi merkið til Texas þaðan sem það fór upp í gerfihnött og var dreift til um 30 skóla víðsvegar um Bandaríkin og víðar.
Í lok ársins 2000 flutti Tölvun starfsemi sína í eigið húsnæði að Strandvegi 51. Í versluninni fæst flest það sem viðkemur tölvunotkun einstaklinga og fyrirtækja. Tölvur og alhliða skrifstofurekstrarvörur eru helsta söluvaran. Helstu birgjar eru EJS með DELL vörur, Nýherji með IBM og Canon og Opin kerfi með búnað frá Hewlett-Packard.
Starfsmannastefna Tölvunar sem er mjög í anda símenntunar, auk auk þess sem boðið er upp á þátttöku starfsmanna í rekstri félagsins með hlutabréfakaupum. Í dag eru 15% hlutafjár eyrnamerkt starfsmönnum.
Starfsmannafélag Tölvunar heitir Ölvun og eru reglulega haldnar samkomur í félaginu sem eflt hafa móralinn. Einnig er Gólfklúbbur starfandi á vegum starfsmannafélagsins, Gölvun, og er hann mjög virkur yfir sumartímann auk þess sem Tölvun-Not-So-Open er haldið á hverju vori. Boltafélagið er aðallega starfrækt á veturna og eru æfingar vikulega á þriðjudögum í hádeginu. Að sjálfsögðu heitir Boltafélag Ölvunar BÖLVUN.
Að lokum má geta þess að Tölvun starfrækir Tölvuskóla Vestmannaeyja í samvinnu við starfsmennina Hallgrím og Davíð. Skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 1993 og útskrifað yfir 500 nemendur á hinum ýmsu stigum tölvuþekkingar. Tölvuskólinn er með aðstöðu á 3 hæð í Rannsókna- og fræðasetrinu að Strandvegi 50. Skólinn er útbúinn þráðlaus fartölvuveri.
|