Ísfélagið semur við Tölvun um hýsingarþjónustu PDF Print E-mail
Wednesday, 26 October 2011 15:08

Mynd tekin af eyjafrettir.isTölvun hefur samið við Ísfélag Vestmannaeyja um hýsingarþjónustu til næstu 3ja ára.  Samningurinn felur í sér að Tölvun mun leigja Ísfélaginu aðgang að vélasal Tölvunar, sem innifelur aðgengi að netþjónamiðju og miðlægri diskageymslu ásamt afritun.

Fjórir stórir netþjónar munu sjá um þjónustu við Ísfélagið ásamt mjög öflugri diskastæðu sem geymt getur allt að 24TB (1TB=1TeraBæti=1000GB(GígaBæti).  Ljósleiðarasambandið milli Ísfélags og hýsingaraðstöðunnar gerir Tölvun kleift að veita þessa þjónustu á ofurhraða.

Stækkunarmöguleikar eru miklir með þessari lausn og verður því hægt að bæta við bæði reiknigetu og diskaplássi, eftir þörfum.

Þetta er enn ein rósin í hnappagat Tölvunar því að í fyrra samdi félagið við Vinnslustöðina á svipuðum nótum.

Einnig hýsir Tölvun bókhaldskerfi og gögn fyrir nokkur fyrirtæki hér í Eyjum og uppi á landi.  Nýja blaðmiðjan tekur allt að 16 netþjóna þannig að það er nóg pláss fyrir fleiri aðila að tengjast hýsingarþjónustunni sem er í niðurkældu rými með varaaflgjöfum.

 

Fréttatilkynning tekin af www.eyjafrettir.is
 
RocketTheme Joomla Templates